Mér barst gott símtal áðan frá einni af þeim kostakonum sem starfa við Mæðrastyrksnefnd. Hún var, líkt og síðustu ár, að biðla til okkar í Ungum vinstri grænum að koma og aðstoða við að pakka inn matargjöfum fyrir jólin. Að veita hjálpina er sjálfsagt mál og við teljum það forréttindi að fá að eyða örlitlum hluta jólaundirbúningsins í Mæðrastyrksnefnd.
Þegar tími og staður höfðu verið nefnd brá mér hinsvegar í brún. Úthlutunin í ár fer nefnilega fram að Norðlingabraut 12. Það er gríðarfjöldi sem leitar eftir aðstoð yfir jólin og því þarf húsnæðið að vera stórt. Það er hinsvegar skandall að Norðlingabraut 12 sé eini möguleiki nefndarinnar. Húsið er staðsett í næstu götu við þjóðveginn á leið austur fyrir fjall. Það er því augljóst að til að komast að húsnæðinu þarf annað hvort að hafa aðgang að einkabíl eða möguleika á að taka leið 19. Til þess þarf peninga og aftur peninga.
Ég á bágt með að trúa því að Norðlingaholt 12 sé í göngufæri margra þeirra sem aðstoð sækja til Mæðrastyrksnefndar. Norðlingaholtið er glænýtt hverfi, enn í plastinu, og þar liggja milljarðarnir í malbiki.
Verum nú soldið ljúf og lánum Mæðrastyrksnefnd eitt af þessum gríðarstóru iðnaðarhúsnæðum sem standa auð nær miðju Reykjavíkur. Þetta er ótækt
